kjaramál félagsmanna tiltekinna stéttarfélaga BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Frú forseti. Já, ég spurði þingmanninn vegna þess að það er vilji þingmannsins, held ég ef ég skil rétt, að reyna að skipa eins hlutlausan gerðardóm og hægt er. Nei, ókei, þá er það kannski ekki þannig. Þá læt ég þetta svar duga en — (Forseti hringir.)
(Forseti (ValG): Forseti var að enda við að benda á að þingmálið væri íslenska.)
Já, þá skulum við halda okkur við það. Ég skal þá hins vegar enda ræðuna þannig að ég sé mig knúinn til þess að koma í þennan ræðustól til að tilkynna það að ég var ekki að skrá mig í Pírata, bara svo því sé til haga haldið.