144. löggjafarþing — 135. fundur,  23. júní 2015.

störf þingsins.

[14:02]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (F):

Hæstv. forseti. Ég ætla nú ekki að tala niður til almennings á svipaðan hátt og hv. þm. Lilja Rafney Magnúsdóttir gerði hér áðan, en það er ágætt að fara yfir það hvers vegna makríll er kvótasettur eða hlutdeildarsettur réttara sagt nú. Það er vegna þess að hann er hlutdeildarsettur með reglugerð ár í senn. Það er svo að almenningur er oft leiddur á villigötur með því sem hér er sagt úr þessum ræðustól, þess vegna er mjög sjálfsagt að reyna að leiðrétta það. Nú er verið að úthluta makríl með reglugerð ár í senn og fyrir utan það verða 2 þús. tonn til sölu fyrir þá sem vilja hasla sér völl í greininni.

Það hefur komið fram hjá forsvarsmönnum þeirrar undirskriftarsöfnunar sem nýlega fór fram hér á Íslandi að þær breytingar sem nú hafa verið gerðar á frumvarpinu um makrílveiðar komi til móts við þær kröfur og þær væntingar sem þeir ágætu forsvarsmenn höfðu í garð stjórnvalda. Hvers vegna er þessi hlutdeildarsetning sett á? Hún er sett á vegna þess að það kom ábending frá umboðsmanni Alþingis um að sjávarútvegsráðherrar síðustu ríkisstjórnar hefðu brotið lög að hans dómi. Þess vegna þarf að hlutdeildarsetja makríl til þess að hætta að feta þá slóð lögbrota sem þar var farin. Væntanlega mun á seinni hluta þessa árs koma til þess að menn munu koma fram með málsóknir á hendur þessum sömu stjórnvöldum vegna gerða þessara sömu ráðherra. Til þess er núna verið að hlutdeildarsetja makrílinn að feta af þessari slóð, herra forseti.