ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2016.
Herra forseti. Ég tel að atvinnurekendur hafi fyrst og fremst verið að færa rök fyrir því að það hafi verið svigrúm til að lækka tryggingagjaldið. Sumir telja að við hefðum frekar átt að nota svigrúmið til að lækka tryggingagjaldið frekar en leggja áherslu á lækkun tekjuskattsins. En í mínum huga er það alveg skýrt að um þessar mundir á það að vera sameiginlegt verkefni vinnumarkaðarins og stjórnvalda að bæta kjör launþega í landinu og þetta er innlegg í þá vinnu. Þetta er mikilvægt innlegg sem léttir byrðunum af heimilunum, skapar réttu hvatana, gerir að mínu áliti skattkerfið sanngjarnara, dregur úr skattprósentunni á millitekjufólkið sem hv. þingmaður hækkaði skattana á á síðasta kjörtímabili. (Gripið fram í.) Þeir sem leggjast gegn því að við lækkum þessa skatta núna verða að svara því hvort það muni einhvern tímann skapast aðstæður til að lækka skatta eða hvort menn telja bara að það sé mátulegt fyrir fólk að sitja uppi með þá hækkun sem kom hér á eftirhrunsárunum.