145. löggjafarþing — 7. fundur,  16. sept. 2015.

störf þingsins.

[15:23]
Horfa

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (Vg):

Herra forseti. Við vitum lítið hvernig er að búa á meginlandi Evrópu núna eða standa frammi fyrir þeirri neyð sem hrekur fólk á flótta eða hvernig er að standa í flæðarmálinu og taka á móti svona fjölda af skelfingu lostnu fólki, fólki sem stendur frammi fyrir því að á heimili þess er varpað sprengjum, fólki sem þarf að flýja með börnin sín. Því miður hættir okkur til að verða samdauna vondum og óþægilegum fréttum sem birtast á sjónvarpsskjánum okkar dag eftir dag. Undanfarið höfum við heyrt sögur fólks sem komið hefur til Íslands sem flóttamenn eða hælisleitendur. Þessar sögur hafa snert við mér og svo mörgum fleiri. Á laugardaginn safnaðist saman hér á Austurvelli og víða annars staðar í heiminum hópur fólks til að bjóða flóttamenn velkomna til landsins undir heitinu Evrópa býður þig velkominn.

Ekki síst er vert að minnast á frábæra umfjöllun Kastljóss á mánudaginn var sem var afar upplýsandi en um leið mjög átakanleg. Þið sem sáuð ekki þáttinn verðið að gefa ykkur tíma til að horfa sem og á þátt sem var bæði fyrir og eftir Kastljóssþáttinn. Atli Viðar Thorstensen er sérfræðingur hjá Rauða krossi Íslands og hann segir að ef stjórnvöld vilji sé hægt að hefja þetta ferli fyrir tiltekinn fjölda flóttamanna strax. Hann leggur til að farin verði leið í gegnum kerfi Sameinuðu þjóðanna sem mundi forða flóttamönnum frá því að leggja í hættuför yfir Miðjarðarhafið eða ferðast um í flutningabílum eða með öðrum ótryggum hætti.

Eins og hér hefur komið fram hefur fjöldi sveitarfélaga lýst sig reiðubúinn til að koma að þessum málum sem og einstaklingar og því ekkert sem stendur í vegi fyrir því að ríkisstjórnin taki ákvörðun. Hvers vegna að hanga á málinu í ráðherranefnd? Við erum að tala um fólk eins og okkur sem hefur löngun í brjósti til að byggja upp framtíð fyrir sig og börnin sín. Við eigum að fagna því að vera þjóð sem hefur þetta einstaka tækifæri til að taka á móti fólki sem auðgar samfélag okkar og við getum lært svo mikið af. Allt sem þarf er ákvörðun (Forseti hringir.) og yfirlýsing ríkisstjórnarinnar og hana á að taka í dag.


Efnisorð er vísa í ræðuna