tekjustofnar sveitarfélaga.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að þakka málshefjanda fyrir að koma þessari áhugaverðu umræðu á dagskrá. Eins og okkur öllum er kunnugt eru tekjustofnar sveitarfélaga útsvar, fasteignaskattur og framlög úr jöfnunarsjóði, sem hefur aukist alveg gríðarlega að umfangi undanfarin ár, auk þess sem þau innheimta ýmsar þjónustutekjur. Staðan er misjöfn en mörg hafa náð miklum árangri við að ná niður skuldum, en samsetning þeirra er eðlilega misjöfn og atvinnuástand breytilegt.
Með auknum ferðamannastraumi kemur líka í ljós að samfélögin eru misjafnlega undir það búin að taka á móti gestum og ágangur er mismikill. Innviðir þurfa styrkingu og uppbygging þarf að eiga sér stað og til að svo megi verða er nauðsynlegt að tekjur komi inn á svæðin. Það er því ekki óeðlilegt að tekjur sem koma inn á svæðin renni til þeirra að hluta til aftur. Ef verið er að tala um gistináttagjald má alveg færa rök fyrir því að til dæmis jafn hluti renni til ríkis og viðkomandi svæðis til uppbyggingar á því. Þá liggur fyrir að þar sem þjónustan er notuð koma tekjur inn.
Þá má benda á það að þegar kvóti eða fyrirtæki eru seld út úr byggðarlögum rennur skattur af söluhagnaði ekki til viðkomandi sveitarfélags. Er hægt að tryggja sveitarfélögum hlutdeild í því? Má skoða möguleika í því hvernig mæta má þeim í ljósi þess hve mikil áhrif það hefur á atvinnu á svæðinu?
Á mörgum svæðum er ágangur mikill og ljóst að grípa þarf til aðgerða sem kostar pening sem sveitarfélögin hafa fæst handbæran. Sú leið sem hér um ræðir getur orðið þeim sveitarfélögum styrkur sem fyrir hafa ákveðna innviði en öðrum þarf að mæta með öðrum leiðum og má þá láta sér detta í hug hvort möguleiki sé að skipta landsvæðum upp með einhverjum þeim hætti að stærri svæði séu undir og þau hugsuð sem heild. Einhver sveitarfélög hafa lagt grunn að því að byggja upp áningarstaði þar sem ferðamenn geta nýtt sér þjónustu og greitt fyrir hana. Þá er hjá öðrum sett í lögreglusamþykktir að bannað sé að hafa náttstað eða tjalda nema á þar til gerðum svæðum, þannig að hægt sé að ná utan um ferðamannastrauminn að einhverju leyti og beina tekjum til viðkomandi svæðis. Mér sýnist við hafa ýmsa möguleika í stöðunni og þar þurfa sveitarfélög og ríki að vinna vel saman.