145. löggjafarþing — 18. fundur,  8. okt. 2015.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

13. mál
[15:31]
Horfa

Flm. (Vilhjálmur Árnason) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég skal endurtaka spurninguna og hafa hana skýrari. Hv. þingmaður talaði áðan um lýðheilsustefnu ríkisstjórnarinnar. Hvernig finnst hv. þingmanni hún fara saman við þá þróun sem hefur verið hjá vínbúðunum með fjölgun verslana, miklum auglýsingum, aukinni þjónustu og öðru slíku? Það er markmið laganna að hindra aðgengi en verslununum hefur síðan fjölgað töluvert og sýnileiki þeirra aukist. Svo er það hitt að hv. þingmaður talar mikið um rannsóknir. Hvort finnst hv. þingmanni erlendar rannsóknir eða íslenskar staðreyndir ganga lengra? Á meðan vínbúðum, vínveitingaleyfum og útsölustöðum hefur fjölgað hefur neysla unglinga dregist saman. Þetta er íslensk staðreynd sem stendur þá gegn hinum erlendu rannsóknum.