145. löggjafarþing — 36. fundur,  18. nóv. 2015.

um fundarstjórn.

[15:41]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti upplýsir það að hæstv. utanríkisráðherra verður ekki við umræðuna hér í dag. Hann er upptekinn við aðrar skuldbindingar sem hann hefur sem ráðherra og þingmaður. Hins vegar er málið eins og hv. þingmaður vakti athygli á á forræði Alþingis. Það hefur farið inn í utanríkismálanefnd og verið afgreitt þar og mælt fyrir því af hv. formanni nefndarinnar, þannig að ekki á að vera neitt því til fyrirstöðu að halda umræðunni áfram.