tilkynning um skrifleg svör.
Borist hafa tvö bréf frá innanríkisráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurn á þskj. 264, um kyrrsetningu loftfara, frá Helga Hrafni Gunnarssyni, og fyrirspurn á þskj. 270, um rafdrifinn Herjólf, frá Oddnýju G. Harðardóttur.
Þá hefur borist bréf frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 352, um breytingar með tilkomu Stjórnstöðvar ferðamála, frá Oddnýju G. Harðardóttur.