lengd þingfundar.
Virðulegur forseti. Ég skil ekki hvað menn eru að tala um hérna. Semja um lok — það eru um sex eða sjö á mælendaskrá og við erum að tala um breytingartillögur á milli umræðna upp á 10 milljarða. Af hverju ættum við ekki að vera að ræða fjárlögin? Ég skil ekki hvað menn eru að ræða, að þingflokksformenn eigi að setjast niður og semja um hvað? Má fólk ekki fara í sínar fyrstu ræður og ræða málið? Við höfum ekki haft tíma til að spyrja meiri hluta hv. fjárlaganefndar hvernig hún rökstyður allar sínar breytingartillögur sem eru margar hverjar æðidularfullar. Við verðum að ræða það í þingsal. Hér hafa margir stjórnarliðar tekið til máls. Þetta eru góðar umræður. Er hv. þm. Ásmundur Einar Daðason að segja að við séum að stunda málþóf? Nei, ég skil ekki hvað er í gangi hérna. Höldum bara áfram að ræða málin en verum fyrr á ferðinni á næsta ári. Þetta gengur auðvitað ekki svona.