145. löggjafarþing — 54. fundur,  14. des. 2015.

lengd þingfundar.

[15:30]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Hér hefur í sjálfu sér ekki verið óskað eftir atkvæðagreiðslu, þó að ég taki hér til máls um atkvæðagreiðsluna, nema af hálfu hæstv. utanríkisráðherra. Ég held að það væri ráð að forseti Alþingis mundi fara að ræða þinghaldið fram undan þannig að við ræddum þetta ekki hér úr pontu undir liðnum um atkvæðagreiðslu um hvernig nákvæmlega þinghaldinu verður fram haldið. Ég hvet til þess að sitjandi forseti beiti sér fyrir því að farið verði í að ræða hér þinghaldið fram undan undir forustu forseta Alþingis. Auðvitað er það ekki neitt sem við ættum að vera að ræða hér endilega í pontu heldur einmitt að reyna að finna einhverjar leiðir til þess að horfa aðeins fram á veginn og sjá fyrir okkur hvernig við ætlum að ljúka þessu.