fjárlög 2016.
Virðulegi forseti. Ég vil ítreka óskir til forseta um að hann upplýsi um fyrirhugaða verkáætlun það sem eftir lifir nætur og fagna því að hann hafi gert ráðherrum viðvart um óskir. Það er eðlilegt þegar verið er að ræða fjárlagafrumvarpið, sem eðli málsins samkvæmt við 2. umr. ber breytingartillögur sem vissulega eru á ábyrgð fjárlaganefndar en hafa hlotið samþykki í ríkisstjórn, að ráðherrar séu til reiðu. Það er jú þeirra að standa að baki og standa fyrir rekstri sinna málefnasviða miðað við þær fjárlagatillögur sem þeirra eigin ríkisstjórn hefur samþykkt. Það skiptir máli fyrir umræðuna að þeir séu viðstaddir hér þegar þess er óskað. Ég vil þakka forseta fyrir hversu tillögugóður hann hefur verið í því efni.