145. löggjafarþing — 56. fundur,  16. des. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[11:27]
Horfa

Kristján L. Möller (Sf):

Hæstv. forseti. Ég ætla að ræða um tvö atriði í þessar tíu mínútur sem ég hef nú, annars vegar framlög til Landspítala, þjóðarsjúkrahússins og hins vegar margumrædd málefni aldraðra og öryrkja.

Það er sorglegt að uppgötva eða verða þess áskynja að það hefur engan tilgang að óska eftir nærveru viðkomandi fagráðherra til að eiga orðastað við þá. Mér er til efs, virðulegi forseti, að það sem við höfum verið að reyna að taka upp við 1. umr. fjárlagafrumvarpsins, að fagráðherra sitji fyrir svörum þá, sé rétt nálgun á málið, ég held að það sé betra þegar 2. umr. fer fram.

Stjórnarliðar hafa hælt sér af því að framlög til Landspítalans, þessa þjóðarsjúkrahúss okkar, hafi hækkað um 30% í tíð núverandi stjórnar. Þetta kemur fram í nefndaráliti meiri hlutans. Það sem ég vil segja, virðulegi forseti, er að þetta er einfaldlega rangt. Þetta er ekki rétt. Ef tekið er tillit til liða sem eru verðbætur og launabætur upp á tæpa 4,2 milljarða þá lækkar þessi tala, þessir 11,6 milljarðar sem eiga að gera 30% hækkun, strax niður í 7,4 milljarða kr. Ef áfram er haldið við að taka verðbætur inn þá lækkar talan. Hún lækkar líka enn frekar ef við tökum inn atriði eins og innleiðingu aðgerða með skurðþjarka og ef við tökum tillit til innbyggðrar aukningar á þjónustuþörf landans, allt að 1,7%, gagnvart Landspítalanum, þá fer þessi hækkun nánast að hverfa. Þetta er það sem stjórnarliðar setja fram máli sínu til stuðnings, en það fellur um sjálft sig. Ef við höldum áfram og tökum yfir flutning fjárheimilda vegna S-lyfja frá Landspítalanum til Sjúkratrygginga þá fer þetta að verða ekki neitt neitt. Þetta er það sem við vitum. Það er hin sorglega staðreynd. Það var þess vegna sem forstjóri Landspítalans og hans teymi komu á fund fjárlaganefndar … [Háreysti í þingsal.]

Virðulegi forseti. Er eitthvað að í húsinu? Á ég að hætta?

(Forseti (EKG): Nei, hv. þingmaður hefur orðið.)

Er nokkur vá? Er eitthvað að ske, hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson?

(Forseti (EKG): Hv. þm. Kristján L. Möller hefur orðið.)

Ég var hálfhræddur um að eitthvað væri að gerast hérna í húsinu og við ættum að yfirgefa húsið, þvílíkur var djöflagangur í hv. þingmanni. (Forseti hringir.)

Virðulegi forseti. Það er kannski eðlilegt að þegar talað er um þessi mál og það hrakið sem sett hefur verið fram verði menn hálfvitlausir, ég verð að nota það orð, virðulegi forseti. Ég er þeirrar skoðunar að þegar forstjóri Landspítalans, ég held að ég hafi verið að koma að því þegar þessi ósköp dundu yfir í þingsal, heimsókn forstjóra Landspítalans og stjórnenda hans til fjárlaganefndar til að ræða fjárhagstillögur til Landspítalans til að halda uppi starfsemi, hafi það verið til að fá strax fram við fjárlagaumræðuna hvort skorið yrði niður eða hvort þeir ættu að fá að halda eðlilegri starfsemi. Ábyrgir stjórnendur eins og eru á Landspítalanum, þegar þeir fá fjárlög í hendur, bregðast við strax á fyrstu dögum ef það þarf að skera niður eða draga úr þjónustu. Það er akkúrat málið. Við getum lesið það í greinargerð meiri hlutans að í júní síðastliðinn biðu rúmlega 3.600 einstaklingar eftir skurðaðgerð á augasteini, um 1.200 manns eftir gerviliðaaðgerð á mjöðm og hnjám og rúmlega 200 manns eftir hjarta- og kransæðamyndatöku. Það segir allt sem segja þarf. Að vísu hafa verkföll spilað inn í og sem betur fer er brugðist við því í fjárlagatillögum að setja inn pening til að vinna á þessum biðlistum. Eða getum við sagt að það sé heilbrigt og gott heilbrigðiskerfi sem er með rúmlega 3.600 einstaklinga á bið eftir augasteinaaðgerð með þeim mikla mun sem fylgir slíkri aðgerð fyrir fólk sem þarf á henni að halda? Ég leyfi mér að halda að þetta sé nóg til þess að tala um.

Virðulegi forseti. Að mati Landspítalans vantar tæpa 3 milljarða inn í þennan pakka til þess að hann geti haldið uppi eðlilegri og góðri starfsemi. Það hefur verið útlistað hér og það hefur komið fram að þegar stjórnendur spítalans komu til fjárlaganefndar þá var verið að mati meiri hluta nefndarinnar að beita fjárlaganefndarmenn andlegu ofbeldi. Væntanlega er þar með talinn hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson sem hefur þá orðið fyrir þessu andlega ofbeldi og skýrir kannski margumrædda innkomu.

Virðulegi forseti. Í seinni hluta ræðu minnar vil ég enn einu sinni ræða um málefni aldraðra og öryrkja. Þar er það sama á ferðinni. Stjórnarliðar koma fram með háar tölur, 17,1% hækkun, en geta ekki um að inni í þeirri tölu er það sem á að gera 1. janúar næstkomandi. Þeir ræða heldur ekkert um fjölgun þjóðarinnar og þeir ræða ekkert um þann mikla fjölda sem fær lífeyri og örorkubætur, 47 þús. manns. Nei, þetta er sett fram í svakalegum tölum og vissulega eru þær háar vegna þess að einstaklingarnir eru margir.

Það sem er hins vegar staðreynd málsins er að í tíð þessarar ríkisstjórnar fram að 1. janúar síðastliðnum, með þeim aðgerðum sem ríkisstjórnin er alltaf að hæla sér af að hafa gert í júníbyrjun 2013, hafa óskertar örorkulífeyrisgreiðslur hækkað um 6 þús. kr. fram að síðustu áramótum. Við síðustu áramót bættust allra náðarsamlegast við, og þetta er það sem stjórnarliðar eru svo hreyknir af, 4 þús. kr. Þannig að þetta ár hefur hækkunin verið 10 þús. kr. eftir skatt. Við eigum að sjálfsögðu að ræða um upphæðirnar eftir skatt, ekki áður en skattgreiðslur verða vegna þess að aldraðir og öryrkjar lifa ekki á upphæðinni sem á eftir að taka skatt af.

Virðulegi forseti. Ég hef sagt það hér að breytingar sem ríkisstjórnin gerði um síðustu áramót með hækkun matarskatts og ýmsu öðru sem fylgdi þar með, eins og hækkun á húshitun og rafmagni og fasteignagjöldum og hækkun húsnæðiskostnaðar, þá voru þessar 4 þús. kr. horfnar á sama degi og þær birtust öldruðum og öryrkjum. Þess vegna finnst mér það alveg óskiljanlegt, virðulegi forseti, og það hefur verið meginumræðuefni mitt við þessa fjárlagaumræðu að reyna að spyrja og fá svar við því hvers vegna í ósköpunum bætur aldraðra og öryrkja, greiðslur til aldraðra og öryrkja, eru ekki hækkaðar afturvirkt eins og gert er hjá öllum öðrum í þjóðfélaginu sem hafa fengið kauphækkanir á þessu ári. Þetta er þráhyggja stjórnarliða sem hanga á því og segja að þetta sé gert einu sinni á ári við fjárlagagerð. Þá minni ég á að síðasta ríkisstjórn tók inn kjarabætur sem samið var um strax um sumarið 2011 og setti inn 8% hækkun á alla og eingreiðslu upp á 51 þús. kr. vegna þess að hún stóð við það sem hún sagði á erfiðleikaárum okkar með öllum þeim niðurskurði að byrjað yrði að skila til baka um leið og staðan batnaði. Hún er sannarlega að batna mikið núna, hugsanlega verður allt að 35 milljarða afgangur á þessu ári 2015 en af honum eru stjórnarliðar ekki tilbúnir að gefa eftir um það bil 4,5 milljarða til aldraðra og öryrkja í eðlilegar hækkanir eins og aðrir hafa fengið á þessu ári. Það er með ólíkindum og skömm þeirra er mikil. Hv. varaformaður fjárlaganefndar ætti að skammast sín fyrir þessa vegferð stjórnarliða.

Haldið svo áfram, haldið þið svo áfram með talnaflóðið sem við munum sennilega fá gusu af hér á eftir um hækkanir til Landspítalans og allt það sem á að vera og má ég endilega biðja hv. þingmann í andsvari að koma nú með milljarðana og háu prósentutölurnar fyrir aldraða og öryrkja. Ég vildi óska þess, virðulegi forseti, að hv. væntanlegur andsvarandi mundi koma og ræða við okkur um 6 þús. kr. og 4 þús. kr. og spyr kannski í lokin hvort hann mundi treysta sér að draga fram lífið á þeim 172 þús. kr. sem öryrkjum er skammtað í dag og þeim 10 þús. kr. (Forseti hringir.) sem ríkisstjórnin hefur hækkað hjá þeim frá því að hún kom til valda. Þetta er skammarlegt og það er þeim til skammar.