Seðlabanki Íslands.
Herra forseti. Ég get tekið undir það með hv. þingmanni að þær ákvarðanir sem verða teknar í þessum efnum verða viðkvæmar. Það er mjög mikilvægt að þannig verði að þeim staðið að tortryggni verði sem minnst og opin umræða um stefnumörkun í þessum efnum verði sem mest, bæði á vettvangi þingsins og annars staðar. Ég get með almennum orðum tekið undir þau sjónarmið að ég tel að það sé rétt.
Ég er eindregið þeirrar skoðunar að ríkið eigi að losa sig við þessa eignarhluta. Ég geri mér hins vegar grein fyrir því að það er vandaverk og það þarf að fara fram um það góð, opin umræða sem þjónar því markmiði að þetta geti gerst á þann hátt að hagsmunir ríkisins, hagsmunir skattgreiðenda og hagsmunir alls almennings í landinu séu sem best tryggðir. Ég get fellt mig við þá leið sem boðuð er í þessu frumvarpi en eins og hæstv. fjármálaráðherra gat um hér áðan hefði vissulega verið hægt að velja aðra formlega leið til að fara að þessu marki.
Ég tel að frumvarpið geti í meginatriðum þjónað vel þessum tilgangi en ég er sammála hv. þingmanni um að opin umræða, bæði á vettvangi Alþingis og annars staðar, um þau skref sem stigin verða í þessum efnum, er afar mikilvæg.