145. löggjafarþing — 85. fundur,  9. mars 2016.

upplýsingar um eignir í skattaskjólum, opinber innkaup.

[15:22]
Horfa

Brynhildur Pétursdóttir (Bf):

Virðulegi forseti. Ég er með nokkrar spurningar af svolítið ólíkum toga. Mig langar fyrst til að spyrja út í skattagögnin eða fréttir af peningaeignum í erlendum skattaskjólum sem fjármunir voru settir í á fjárlögum að kaupa. Ég hef ekkert heyrt af þessu máli; kannski er hæstv. ráðherra að gera efnahags- og viðskiptanefnd grein fyrir þessu. En ég sit í fjárlaganefnd og það væri gaman að sjá eitthvað af þessum peningum, ef við eigum eitthvað þarna inni, koma til baka í ríkiskassann.

Mig langar líka að spyrja út í opinber innkaup, það verður örugglega áhugaverð umfjöllun um það í Kastljósi í kvöld. Þar var hópur að störfum sem hefur skilað skýrslu sem er fyrsti áfangi og margt mjög áhugavert kemur þar fram. Manni sýnist sem við séum ekki að ná utan um þessi opinberu innkaup, það er allt of mikið sem stendur út af. Samt erum við með lög um opinber innkaup.

Mig langar að spyrja hvort ekki þurfi að gera skurk í þessu, þar sem ríkið getur sparað sér töluverðar upphæðir. Það er verið að gera athugasemdir við að það séu allt of margir innkaupastjórar hjá ríkinu, að menn nýti sér ekki stærðarhagkvæmnina og þar fram eftir götum.

Hvað á að taka langan tíma að koma þessum málum í skikkanlegt horf? Hefur hæstv. fjármálaráðherra stjórn á öllum ráðuneytunum? Auðvitað eru þetta fjölmargar stofnanir og mörg ráðuneyti, en mig langar bara að vita hvort hann telji sig hafa stjórn á þessum málum.