145. löggjafarþing — 104. fundur,  29. apr. 2016.

rannsókn á aflandsfélögum Íslendinga og skattundanskotum.

711. mál
[12:12]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Kannski er krafan ekki alveg nógu skýr í augum hv. þingmanns. Krafan er að hér verði umræða til dæmis með þeim aðilum sem að málinu koma. Hæstv. fjármálaráðherra kemur málinu beinlínis við. Í því felst vandinn sem við eigum við hérna. Í því felst það vanhæfi sem fólk talar um, það felst í þeim vanda. Ég veit að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra er upptekinn. Ég ber fulla virðingu fyrir því. En það er líka fráleitt að sá hæstv. ráðherra sé ekki hér þegar við ræðum þetta mál.

Hvað varðar þingmenn meiri hlutans veit ég mætavel að menn geta fylgst með umræðum hvar sem er. En umræðan hlýtur að eiga að eiga sér stað hérna. Það er einn þingmaður meiri hlutans á mælendaskrá og hafi sá hrós fyrir. Þeir mættu vera fleiri. Ég er búinn að bjóða sætið mitt. Það stendur enn þá. En það þarf að eiga sér stað umræða. Það er ekki nóg að hv. þingmenn meiri hlutans heyri kvabbið í stjórnarandstöðunni, við viljum umræðu hérna. Það er algerlega sjálfsagt. Yfir því er kvartað.