145. löggjafarþing — 109. fundur,  10. maí 2016.

Frestun á skriflegum svörum.

[13:33]
Horfa

Forseti (Kristján L. Möller):

Borist hafa þrjú bréf frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurn á þskj. 827, um kennitöluflakk, fyrirspurn á þskj. 1137, um fundahöld, báðar frá Brynhildi Pétursdóttur, og fyrirspurn á þskj. 1145, um flutning verkefna til sýslumannsembætta, frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur.

Einnig hefur borist bréf frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 1195, um kaup á upplýsingum um aflandsfélög, frá Rósu Björk Brynjólfsdóttur.