145. löggjafarþing — 151. fundur,  13. sept. 2016.

búvörulög o.fl.

680. mál
[15:10]
Horfa

Haraldur Benediktsson (S):

Herra forseti. Við lokaatkvæðagreiðslu um þetta stóra mál er mér efst í huga þakklæti til samnefndarmanna í hv. atvinnuveganefnd fyrir gott samstarf og fyrir góðar umræður í þinginu. Við tókum þetta mál í góðri samvinnu í nefndinni, unnum málefnalega að framgangi þess, gerðum á því mjög margar og ítarlegar breytingar sem ég held að verði málinu til heilla þegar til lengdar lætur. Ég er nokkurn veginn sannfærður um að ef við værum ekki svona nálægt kosningum og hefðum haft aðeins meiri tíma hefðum við náð að mynda miklu breiðari sátt um þetta stóra mál en er kannski raunin hér við lokaafgreiðslu.