Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins.
Frú forseti. Það er sjálfsagt hægt að gera skuldbindandi samkomulag á milli ríkis og starfsmanna og stéttarfélaganna með einhverjum hætti til að eyða tortryggni sem uppi er. Auðvitað hafa stéttirnar síðan tækifæri til að berjast fyrir sínum kjörum. Hitt er ljóst að ef ekkert verður að gert þá vex bara mínusinn í A-deildinni og það gæti hins vegar orðið til þess að reikningurinn lendir á börnunum okkar eða að mínusinn verði orðinn svo stór að ekki verði hægt að standa við þau kjör sem lofað hefur verið. Þetta þarf því að skoða frá báðum endum. Ég tel að það séu miklir hagsmunir fyrir starfsmennina að ganga frá samkomulaginu svona, en það má vera að mér (Forseti hringir.) yfirsjáist eitthvað hvað það varðar.