umræða um samgönguáætlun og fjarvera innanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Stundum kemur eitthvað upp á sem þarf að bregðast við hratt. Stundum er það alvarlegt og stundum er það mikilvægt. Þá skýtur það skökku við þegar fólk lætur eins og svo sé ekki. Sú staðreynd að hæstv. ráðherra er úti á landi núna þrátt fyrir að uppi sé skýr og málefnaleg krafa um að hann sé hér til að ljúka þingstörfum finnst mér vera dæmi um það. Þegar það er rosalega mikið stress og allir að leggja sig fram um að reyna að klára eitthvert verkefni þá er það óþolandi að einn eða tveir sitji bara og glápi á sjónvarpið á meðan. Mér finnst það skjóta skökku við að hæstv. ráðherra láti eins og þetta skipti ekki máli þegar það er mikilvægt fyrir þingmenn minni hlutans á Alþingi og alla aðra þingmenn að komast í kosningabaráttu á sama tíma og stjórnarmeirihlutinn. Á meðan þetta er svona þá getur maður ekki ályktað annað en að um sé að ræða (Forseti hringir.) ákveðna misnotkun á Alþingi. Maður getur ekki ályktað annað; leiðrétti mig hver sem betur getur.