146. löggjafarþing — 1. fundur,  6. des. 2016.

siðareglur þingmanna.

[16:25]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti vill geta þess að á borðum hv. þingmanna liggur þingsályktun um siðareglur fyrir alþingismenn sem samþykktar voru á Alþingi 16. mars síðastliðinn. Reglurnar koma til framkvæmda við setningu þings nú í dag. Þegar hv. þingmenn hafa kynnt sér reglurnar eru þeir beðnir að afhenda undirritaða yfirlýsingu á þingfundaskrifstofu um að þeir hafi kynnt sér siðareglurnar.