Varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að 4. þm. Norðvest., Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, Hafdís Gunnarsdóttir.
Kjörbréf Hafdísar Gunnarsdóttur hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hún hefur ekki tekið áður sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.
[Hafdís Gunnarsdóttir, 4. þm. Norðvest., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]