ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2017.
Herra forseti. Við leggjum hér til sambærilega hækkun í vaxtabótum og gagnvart barnabótum vegna þess að það er ekki endilega svo að hækkun húsnæðisverðs, sem myndar ekki beinlínis hækkandi ráðstöfunartekjur, valdi því að viðmiðin komi öllum til góða varðandi ráðstöfunartekjurnar. Við heyrum nú ítrekað að ungt fólk sækir til umboðsmanns skuldara í mjög auknum mæli og það er áhyggjuefni. Við höfum þó reynt að koma eitthvað til móts við þann hóp en það dugar greinilega ekki. Við teljum að þetta sé tilraun til að gera koma til móts við þann hóp. Af því tilefni sem hér hefur fallið bendi ég á að það er hápólitískt efni sem kemur frá ríkisstjórninni um að fella niður miðtekjuþrepið í tekjuskatti. Ég er ekki sátt við það, bara svo það sé sagt. Ég geri mér grein fyrir því að margur er ekki sáttur við margt í þessu frumvarpi. Ég nefndi það í fjárlaganefnd (Forseti hringir.) að formaður minn liti svo á að bandormurinn væri undanskilinn, svo það sé líka sagt vegna þeirra ummæla sem hér hafa fallið.