146. löggjafarþing — 19. fundur,  26. jan. 2017.

tilkynning um embættismenn fastanefnda.

[10:31]
Horfa

Forseti (Unnur Brá Konráðsdóttir):

Á fundi allsherjar- og menntamálanefndar fyrr í dag var Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir kjörin formaður nefndarinnar, Nichole Leigh Mosty 1. varaformaður og Vilhjálmur Árnason 2. varaformaður.

Á fundi atvinnuveganefndar var Páll Magnússon kjörinn formaður nefndarinnar, Ásmundur Friðriksson 1. varaformaður og Hanna Katrín Friðriksson 2. varaformaður.

Á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar var Brynjar Níelsson kjörinn formaður nefndarinnar, Jón Steindór Valdimarsson 1. varaformaður og Njáll Trausti Friðbertsson 2. varaformaður.