146. löggjafarþing — 36. fundur,  28. feb. 2017.

kjararáð.

189. mál
[21:14]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og við tökum þetta að sjálfsögðu til góðrar skoðunar. Ég tel ekki að lagatextinn geri endilega ráð fyrir því að laun dómara muni lækka til samræmis, heldur einfaldlega að það eigi að endurskoða ákvarðanir er varða aðra sem undir kjararáð heyra. En eins og við vitum er það ansi stór hópur. Vissulega er það eitthvað sem er vel hægt að taka til athugunar, að fjarlægja þetta orð og þessa setningu, og það mun væntanlega koma fram í meðförum nefndarinnar.

Ég lít svo á að það sem við höfum gert á þessu þingi hingað til hafi bara alls ekki verið nóg og sé að vissu leyti hálfgerður brandari. Þess vegna er þetta síðasta tilraun til þess að reyna að gera eitthvað aðeins betra úr þessu. Því gleður mig að heyra að hv. þingmaður sé til í að skoða það að veita þessu máli sinn stuðning.