146. löggjafarþing — 40. fundur,  7. mars 2017.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

207. mál
[16:20]
Horfa

Valgerður Gunnarsdóttir (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég er algerlega sammála hv. þingmanni um að það er gríðarlega mikilvægt fyrir þessi byggðarlög að hafa næga raforku til að geta staðið undir og byggt upp atvinnustarfsemi. Þá leitar hugurinn til þess sem heitir byggðalína. Það er eitthvað sem mér finnst að við þurfum svo sannarlega að fara að huga að hvernig við ætlum að setja niður. En þrátt fyrir og með það í huga þurfum við líka að vera meðvituð um hvort við erum að fórna menningar- og náttúruminjum sem eru óafturkræfar. Við verðum alltaf að fara þá leið að vera viss um að við séum að vinna í sátt við mannfólkið og við náttúruna. Það kom mjög vel fram í máli hæstv. ráðherra að við verðum öll að slá af kröfum okkar.