áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég er nú svo lánsöm að sitja með hv. þingmanni í hv. umhverfis- og samgöngunefnd þannig að ég hlakka til þeirrar umræðu sem mun eiga sér stað þar. Ég verð að viðurkenna að sem nýliði var ég mjög bjartsýn varðandi það að við myndum ná að afgreiða það mál sem ég veit að hefur verið mikil deila og ágreiningur um í gegnum tíðina. Ég er svo sem búin að heyra það í þingsal að það eru skiptar skoðanir um þessa áætlun eins og hún er lögð fram.
Ég er bjartsýn að eðlisfari og hlakka til þeirrar vinnu sem fram undan er.