áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Hér veltir hv. þingmaður því fyrir sér hvort sú sem hér stendur hafi yfir höfuð, ef ég skil hann rétt, eitthvað skoðað málið vegna þess hvernig ég legg tillögurnar fram, eins og ég skil hann, eins og það sé einhvern veginn hálfóeðlilegt eða ekki að nógu ígrunduðu máli, að ég leggi tillögurnar frá verkefnisstjórn, það sem sú faglega stjórn leggur til, fram hér óbreyttar. Þá vil ég svara því til að ég hef skoðað tillögurnar frá því að þær voru lagðar fram í ágúst. Þetta eru ekki nýjar upplýsingar fyrir mér frá því að ég tók sæti á þeim ráðherrastól sem ég sit nú í. Þær voru opnar öllum, ekki bara þáverandi umhverfis- og auðlindaráðherra sem lagði, eins og hv. þingmaður reifaði, málið fljótt fram. Við fengum líka kynningu á málinu í atvinnuveganefnd þar sem ég átti sæti. Við fengum verkefnisstjórn oft á fund, ég man ekki nákvæmlega hvar það var í ferlinu, líka áður en hún lagði tillögurnar fram formlega.
Ég vildi svara því hér að ég legg málið fram að vel ígrunduðu máli, ég legg tillöguna fram að vel ígrunduðu máli. Þetta er að mínu mati besta niðurstaðan. Þetta er málamiðlun milli ólíkra sjónarmiða sem ég felli mig við og tel vænlega til þess að mæta ólíkum sjónarmiðum.