tjáningarfrelsi.
Mig skortir upplýsingar um næstu skref í því sem hæstv. ráðherra segir hér. Mér finnst gott að heyra að það eru, alla vega þegar kemur að dómstólum, hugmyndir um hvernig við eigum að takast á við meiðyrði o.s.frv. en réttarkerfið í sjálfu sér, eins og þessi dómur lagði áherslu á, fjallar ekki bara um — og ég er sammála hæstv. ráðherra — að það að geta farið í þetta ferli sé mikilvægt. Það sem þetta fjallar um er að þegar svona dómar koma fram er um að ræða skerðingu á tjáningarfrelsinu, að setja svona dóm fram gerir að verkum að umhverfið í kringum almenning og fjórða valdið verður skert. Mér finnst ekki að maður geti tekið einn dóm hér og einn dóm þar og sagt það sem hæstv. ráðherra segir að það sé margt og mikið að skoða ef maður fer dýpra inn í hvert mál hér. En í heild sinni: Finnst hæstv. ráðherra þetta eðlilegt?