146. löggjafarþing — 47. fundur,  23. mars 2017.

vogunarsjóðir sem eigendur banka.

[10:33]
Horfa

forsætisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Frú forseti. Þetta er auðvitað efni í miklu lengri umræðu ef menn vilja fara djúpt ofan í þessa hluti. Ég ætla aðeins að fara yfir nokkur meginatriði.

Íslenska ríkið var ekki að selja banka núna, það var ekki að gerast. Íslenska ríkið gekk hins vegar þannig frá við slitabú gamla Kaupþings að þeir afhentu íslenska ríkinu skuldabréf upp á 84 milljarða kr. Það sem við vorum með í huga á þeim tíma var það að við vildum ekki að allir þessir fjármunir myndu renna út úr hagkerfinu til kröfuhafanna með áfalli fyrir íslensku krónuna. Það var frá þeim tíma fyrirséð að nýir eigendur bankans, sem urðu til eftir að slitum þrotabús Kaupþings lauk, myndu leita nýrra fjárfesta.

Það sem ég vil fagna hér í upphafi þessarar viku er það skref sem við sjáum nú glitta í, að það takist að skrá bankann og horfir til þess í fyrsta skipti frá hruni að við fáum banka sem fær eitthvert framtíðareignarhald. Verið er að undirbúa skráningu hans, ekki satt.

Hér er beint til mín spurningu um það hvort ég sé sáttur við einstaka eigendur. Við erum með lög um þessi efni. Hv. þingmaður segir að ég hafi fagnað því að einhverjir tilteknir aðilar ætluðu að gerast kjölfestufjárfestar. Það er bara alrangt. Lögin gera ráð fyrir því að kjölfestufjárfestar séu þeir sem komnir eru yfir 10% og að þeir muni þurfa að fara í gegnum nálarauga Fjármálaeftirlitsins, ekki satt. Ég treysti Fjármálaeftirlitinu til þess að fara yfir það hvort þeir sem eftir því sækjast séu til þess bærir að fara með slíkan eignarhlut.

Síðan verðum við að horfast í augu við að fjármálafyrirtæki, eins og öll önnur fyrirtæki sem eru skráð á markað, munu í framtíðinni geta gengið kaupum og sölum. Og eftir að við höfum losað hér um fjármagnshöft getur hver sem er keypt hlutabréf upp á 1, 2, 3, 5% í Icelandair eða í Eimskipafélaginu eða í fjármálafyrirtæki. Ég vænti þess ekki (Forseti hringir.) að við munum efna til umræðu um það hér í þingsal þegar slíkt gerist. Hitt er allt annað mál þegar við erum að tala um (Forseti hringir.) kjölfestufjárfesta, þeir eru engir komnir eins og staðan er í dag.