orð ráðherra um peningamálastefnu.
Virðulegi forseti. Vitnað er til Financial Times. Það er vissulega rétt að þar eru höfð eftir mér ummæli. Samhengi ummælanna var þetta: Ég var spurður, líklegast fyrir um tíu dögum, kannski lengri tíma því að blaðamaðurinn hefur rætt við mig tvisvar og í fyrra skiptið var verið að skipa þessa peningastefnunefnd: Hvert verður verkefni nefndarinnar? Ég skýrði það að verkefni nefndarinnar væri í samræmi við stjórnarsáttmála að finna peningastefnu sem myndi leiða til stöðugra gengis á íslensku krónunni og hvaða leiðir væri hægt að fara að því marki. Þá nefndi ég m.a. að Viðreisn hefði bent á myntráð í baráttunni fyrir kosningarnar. Að hægt væri að tengja íslensku krónuna ýmsum stórum gjaldmiðlum. Þeir sem kæmu þá til greina væru bandaríkjadalur, breska pundið eða evran og ég teldi að evran væri þar langvænlegasti kosturinn. Líka mætti hugsa sér að tengja krónuna við körfu gjaldmiðla. Ég lét þess líka getið að það væri afleit hugmynd að tengja krónuna við myntir, eins og t.d. norsku krónuna og kanadadollar, eins og sumir hafa lagt til. Þetta er eitt af því sem verður væntanlega skoðað í þessari nefnd. Ég geri engar athugasemdir við að forsætisráðherra segi að þetta sé ekki yfirvofandi. Nefndin er ekki búin að skila niðurstöðu. Þegar hún skilar niðurstöðu munum við vinna úr þeim.