146. löggjafarþing — 69. fundur,  23. maí 2017.

fjármálaáætlun 2018--2022.

402. mál
[16:58]
Horfa

Valgerður Gunnarsdóttir (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég vil nú bara snúa dæminu við og segja að það er gott að stjórnarandstaðan er svona sammála meiri hlutanum um þá framtíðarsýn sem stjórnarþingmenn vilja sjá. (SIJ: Ekki ríkisstjórnin.) Og ríkisstjórnin. (BjG: Nei.) Það er alveg hárrétt að við erum að benda á hluti sem betur mega fara. Ég tel að það sé bara ekkert að því að bæta inn í þá áætlun sem hér er fram lögð þeim hugmyndum sem við höfum til að vinna betur að uppbyggingu í landinu.