jöfn staða og jafn réttur kvenna og karla.
Frú forseti. Umræðan um þetta mál í 2. umr. í nótt var bara ágæt. Við vorum hér nokkur þrátt fyrir að salurinn hafi verið tómur og við skiptumst á að tala fyrir tómum sal. En það sem hefur verið ágætt við meðferð þessa máls er að við höfum komist að því að hér verða ný lög í gildi sem eru leynileg, þar sem almenningur fær ekki að vita hvað stendur í lögunum. Það er vegna þess að lögin kveða á um að staðli sé fylgt og staðallinn er ekki opinber. Með samþykkt þessa máls verða slík lög orðin tíu. Mér finnst, frú forseti, að við eigum að fækka slíkum lögum en ekki fjölga þeim. Opnir staðlar eru betri en lokaðir staðlar. Það er betra þegar fólk getur séð hvernig á að fylgja stöðlunum og getur þá farið eftir þeim og þarf ekki endilega að fara í gegnum einhvers konar skrýtnar lykkjur. Þetta mál er ekki nægilega vel unnið og við vitum það vegna þess að Staðlaráð virðist hafa komið af fjöllum um að það ætti að fara að opna á þeirra mál án þess að búið væri að semja við stofnunina fyrir fram.