fjárlög 2018.
Virðulegi forseti. Ég held að allir sem skoða söguna ættu að geta áttað sig á því hversu slæmar afleiðingar misskipting innan samfélags hefur á samfélagið sjálft. Þarna virðist vera grundvallarmunurinn og það sem við þurfum að passa okkur á er hvort við tökum á ósanngjarnan hátt meiri skattbyrði af vissum hópum en öðrum. Það er alveg tvímælalaust eitthvað sem við erum að togast á um. Þegar allt kemur til alls þá er það einmitt í hag þeirra sem hafa það verst í samfélaginu og sem slíkt er það samkvæmt skilgreiningunni jöfnunarhlutverk, óháð því hvernig maður útfærir það.
Varðandi umræðurnar hérna þá fáum við frumvarpið með ekkert rosalega löngum fyrirvara fyrir 1. umr. Það er dálítið torf að fara í gegnum frumvarpið og fatta samhengið í þessu öllu. Það gerir að verkum að 1. umr. er einmitt svo mikilvæg til að stilla saman skilning okkar á því hvað er verið að setja fram í frumvarpinu. Þá þurfum við að fá skoðanir allra sem eru hérna inni, ekki bara stjórnarandstöðunnar, heldur líka stjórnarþingmanna. Ég hvet þá til þess að taka þátt til þess að segja okkur hver er skilningur þeirra á því hvað er verið að setja fram í fjárlagafrumvarpinu þannig að við getum átt þessa umræðu og öðlast betri skilning á því. Eins og við erum að reyna að komast að hérna, er þetta hugtakamisskilningur eða erum við að tala um sama hlutinn?
Ég nota a.m.k. þessa umræðu til þess að læra af öðrum þingmönnum, finnst það mjög nauðsynlegt af því að við höfum ekki haft nægilegan tíma til þess sem einstaklingar að kynna okkur frumvarpið algjörlega í gegn og ná öllum tengingum sem eru í því. En saman höfum við farið þó nokkuð vel yfir það og getum gert þær tengingar saman. Þetta er tækifærið okkar til þess í 1. umr.