147. löggjafarþing — 3. fundur,  14. sept. 2017.

fjárlög 2018.

1. mál
[14:47]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Vissulega er þetta brött hækkun; ég ætla ekki að gera lítið úr því. Ég tek undir með hv. þingmanni að það þarf að greina þetta. Ég óskaði einmitt eftir mótvægisaðgerðum. Hæstv. ráðherra nefndi að skilgreina flugið sem almenningssamgöngur. Það er svolítil tvöfeldni í því ef maður hugsar um það því að það er mjög mengandi ferðamáti, flugið. Þótt maður skilji hinn endann á því; fólk kemst ekki á milli staða nema nota flugið. Það er algerlega óbærilegt að borga 50 þúsund kall fyrir að fljúga fram og til baka. En efnahags- og viðskiptanefnd kemur til með að fara yfir þessi tekjumál umfram fjárlaganefnd að einhverju leyti. Mér finnst mikilvægt, þegar við tölum um að styrkja tekjustofna og breikka tekjustofna ríkisins, að við gerum það á þessum tíma uppbyggingar. Það er mikilvægt að eiga eitthvað þegar niðursveiflan verður því að hún verður alltaf einhvern tíma. Þótt við séum búin að segja þetta núna í svolítinn tíma (Forseti hringir.) í ljósi mikils hagvaxtar er alveg ljóst að við tökum einhvern tíma dýfu. Þá er nú betra að hafa afgang.