fjárlög 2018.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa ábendingu. Þetta er stærra samhengi. Það er einmitt gaman að skoða þessar breytingar á ramma töflunnar sem lýsir útgjaldasvigrúminu upp á 48 milljónir. Þetta er vandinn í hnotskurn.
Þegar ég fer yfir þessi verkefni sem löggæslan á að fara í samkvæmt fjármálaáætlun þá er ekki það erfitt að kostnaðargreina þau, alla vega ekki þannig að skeiki nema fáum tugum milljóna og í raun í lægra hlutfalli en það. Það ætti að vera auðvelt að fá kostnaðartölurnar og geta þá tengt; það vantar betri tengingu frá þessum verkefnum, þessum aðgerðum, yfir í nákvæmlega hvað verið er að fjármagna.
Eins og ég segi hef ég ekki fengið nægan tíma til að ná að gera allar þessar tengingar. Þess vegna spyr ég hv. þingmann, sem var búinn að skoða þetta málefnasvið aðeins betur, þar sem hann er í nefndinni, hvort hann sjái þessar tengingar frá fjármálaáætluninni að þessum aðgerðum sem eru ekki kostnaðarmetnar; það er bara tómt, það er ekki einu sinni sagt innan ramma eins og á flestum öðrum málefnasviðum, sem er alveg jafn slæmt að einhverju leyti því að það gefur manni tóm svör. Ég spyr hvort hann sjái tengingu frá þessum aðgerðum yfir í fjárlagafrumvarpið á einhvern hátt og hafi þá kannski hugmynd um það nær hvaða aðgerðum við þokumst bara á þessu ári.