147. löggjafarþing — 3. fundur,  14. sept. 2017.

fjárlög 2018.

1. mál
[16:07]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langar að skerpa aðeins á þessu. Ég er sammála hv. þingmanni um aðgengi að þjónustunni og því um líkt. En ég er að spyrja hvort hv. þingmaður sé á þeirri skoðun að heilbrigðiskerfið eigi að vera í opinberum rekstri, heilbrigðiskerfi sem allir geta haft aðgang að eins og hann lýsir. Og að við séum líka með þann möguleika að gera þjónustusamninga. En grunnurinn sé sá að það sé aðgengilegt kerfi rekið af hinu opinbera sem er forgangurinn hjá okkur hér innan húss, upp á ákveðna ábyrgð og tengsl og svoleiðis.

Ég vildi leiðrétta þetta með biðraðirnar, þær styttast ekki neitt, það eru nákvæmlega jafn margir læknar og jafn margir sjúklingar. Biðraðir styttast ekki nema maður fækki sjúklingum eða fjölgi læknum.