dagskrártillaga.
Virðulega Alþingi. Við í Bjartri framtíð erum hjartanlega sammála um nauðsyn umbóta á stjórnarskránni og við erum sammála því að það eigi að breyta breytingarákvæðinu til að gera það auðveldara.
Við erum hins vegar með mjög opin augun, sérstaklega eftir samtöl flokkanna í síðustu viku, um að við erum á síðustu metrunum, ef ekki síðustu sentímetrunum, í þessu þingi. Því hefur verið hótað að hér verði boðað málþóf til að koma í veg fyrir að nokkuð komist í gegn ef þessi tillaga kemst til umræðu. Við teljum mikilvægt að lagaákvæði um uppreist æru verði afnumin og að lögum um útlendinga verði breytt, m.a. til að ná utan um mál ungra barna sem hafa unnið hug og hjörtu okkar allra, bæði á Alþingi og meðal þjóðarinnar. Við teljum að þetta sé svo mikilvægt að ekki sé á það hættandi að þetta þing ljúki störfum án þess sóma að klára þau mál.
Við teljum hins vegar mjög mikilvægt fyrir næsta þing (Forseti hringir.) að hefja strax endurskoðun stjórnarskrárinnar og að endurskoða þingsköp þannig að minni hluti geti ekki komið í veg fyrir að mál nái í gegn.