fjárlög 2018.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þann áhuga sem hann sýnir stefnu Sjálfstæðisflokksins í hinum ýmsu málaflokkum. Það er sjálfsagt að taka góðan tíma í þinginu til að fara yfir það hvernig stefna Sjálfstæðisflokksins birtist í áherslum ríkisstjórnarinnar og í stjórnarsáttmálanum. Það væri t.d. hægt að gera í utanríkismálum. Ég bendi hv. þingmanni á þann kafla.
Svo verð ég að segja að ég bíð sjálfur eftir því að sjá stefnu hans flokks sem alltaf var boðuð fyrir kosningar en kom eiginlega aldrei nema í grófu línunum, breiðu línurnar voru kynntar en mest lítið annað.
Sjálfstæðisflokkurinn stendur einfaldlega fyrir það að við séum hér á landi með kraftmikið atvinnulíf sem standi undir öflugu velferðarkerfi. Allt það sem ég sagði í ræðu minni áðan sýnir að við erum að ná þeim mikilvægu málum fram í dag, á undanförnum árum og til næstu ára. Við höfum líklega aldrei staðið sterkar sem efnahagskerfi, við Íslendingar. Þess vegna er það sem við leggjum aukna fjármuni í velferðarkerfið, eins og ég rakti í gær. Öll verkefni okkar snúast um að hlúa að þessu samfélagi. Okkur er að takast það betur, enda eru lífskjörin á Íslandi, hinn endanlegi mælikvarði á það hvernig okkur Íslendingum gengur, með því fremsta sem við finnum í heiminum. Um það snýst stefna Sjálfstæðisflokksins og hún gengur vel fram.
Varðandi skattalækkanir vil ég vekja athygli þingmannsins á því að í ríkisfjármálaáætluninni sem var samþykkt á Alþingi síðastliðið vor var gert ráð fyrir því að álögur á eldsneyti myndu hækka um 4,7 milljarða. Þau munu ekki hækka um 4,7 milljarða eins og ríkisfjármálaáætlunin gerir ráð fyrir, heldur um 1,6 milljarða. Það er breyting.
Hv. þingmaður segir að ég hafi boðað lækkun tryggingagjalds í upphafi árs 2016. Á miðju því ári lækkaði tryggingagjald um 0,5%, þannig að ég stóð aldeilis við það, eins og boðað hafði verið. Um frekari lækkun tryggingagjalds vísa ég til stjórnarsáttmálans. Það er algjört grundvallaratriði að við lækkum ekki (Forseti hringir.) tryggingagjaldið úr öllu samhengi við það sem er að gerast á vinnumarkaði. Það verður á endanum að vera samkomulagsmál og (Forseti hringir.) við ætlum ekki að stefna afkomu ríkisins í voða með einhliða lækkun gjaldsins án tillits til þess sem er að gerast þar.