afleysingaferja fyrir Herjólf.
Virðulegi forseti. Það er kannski við hæfi á þessum degi þegar rétt 45 ár eru liðin frá upphafi eldgossins í Heimaey, að beina fyrirspurn til hæstv. samgönguráðherra um Herjólf og mál tengd samgöngum til Vestmannaeyja.
Herjólfur er að fara í slipp, skilst mér. Ég spyr um það skip sem á að leysa Herjólf af á meðan á því stendur, sem gæti tekið tvær, þrjár vikur. Hvernig er aðbúnaður farþega um borð? Þetta er farþegaferjan Bodø sem kemur frá Noregi. Mér skilst að þar séu engar kojur fyrir farþega, sem mér finnst algjörlega óboðlegt fyrir íbúa í Vestmannaeyjum á meðan flug til Vestmannaeyja fram og til baka til Reykjavíkur kostar 36.000 kr. Hefur ríkisstjórnin eða samgönguráðherra ekki hugað að því að niðurgreiða flug alla vega á meðan þessi óboðlegi farkostur er í boði, á meðan Herjólfur er í slipp? Hefur ekki komið til greina að greiða niður flug fyrir íbúa Vestmannaeyja? Ég veit að fólk sem er sjóveikt fer ekki þessa leið án þess að geta lagst í koju. Ef skipið er kojulaust, sem mér skilst að það sé, er það algjörlega óboðlegt fyrir langflesta íbúa í Vestmannaeyjum að ferðast á milli nema borga stórfé fyrir að fljúga.
Svo er annað, er það rétt að ferjan geti ekki tengst landgöngubrúm í Þorlákshöfn og Vestmannaeyjum? Þurfa þá farþegarnir að ganga um bíladekkið upp á bryggjuna núna í janúar, í verstu vetrarveðrum?