148. löggjafarþing — 17. fundur,  25. jan. 2018.

norrænt samstarf 2017.

92. mál
[12:45]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka jákvæð viðbrögð við fyrirspurn minni. Það kemur mér ekkert á óvart ef umræðan er komin frekar skammt á veg á þeim vettvangi eins og reyndar víðast hvar annars staðar. Ástæðan er einföld: Tæknin þróast miklu, miklu hraðar en svo að stjórnmál almennt, hvað þá einstaka nefndir, geti endilega brugðist við því sem kemur upp nýtt.

Það nýja sem hefur komið upp og kemur upp aftur og aftur er hversu óheyrilega lélegt upplýsingaöryggi er orðið í heiminum almennt í dag. Eins og ég fór yfir í ræðu nýlega þá voru að uppgötvast núna í byrjun ársins hreint út sagt agalegir öryggisgallar sem eru í meira eða minna öllum tölvum í heiminum. Það þýðir að pressan verður meiri. Það eru núna fleiri leyniþjónustur sem hafa betri og meiri vopn. Það eru fleiri glæpasamtök sem hafa fleiri og betri vopn. Það eru fleiri einstaklingar úti í bæ sem hafa gaman að því að leika sér að hakka hluti sem hafa fleiri og meiri vopn.

Það er ekkert sem bendir til þess að þetta skáni í náinni framtíð, þvert á móti, þetta kemur til með að versna. Þess vegna er svo mikilvægt að við endurskoðum upplýsingaöryggismál okkar með hliðsjón af okkar hagsmunum. Þeir eru ekki endilega í samræmi við meginhernaðarlega hagsmuni eða varnarhagsmuni okkar sem við eigum vissulega í meginatriðum með Bandaríkjunum. Að þessu leyti erum við ekki alveg í sama bát þegar kemur að þessu. Við höfum ekki burði, Ísland, til þess að verjast hvað varðar upplýsingaöryggi, hvergi nálægt því, og munum ekki öðlast þá burði nema í samstarfi við þá aðila sem hafa sömu öryggisupplýsingahagsmuni og við, það eru vitaskuld Norðurlöndin.

Ég þakka hv. þingmanni fyrir að benda á þessi tæki sem hv. þingmaður fór yfir og býð fram aðstoð mína eða annarra í þingflokki Pírata við að nota þau tæki til að koma þessu málefni á framfæri innan vettvangs nefndarinnar.