148. löggjafarþing — 28. fundur,  22. feb. 2018.

sveitarstjórnarlög.

190. mál
[15:02]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Smára McCarthy fyrir ræðuna, fín rök og margt athyglisvert. Ég vil taka fram að ég er einn af meðflutningsmönnum frumvarpsins.

Það sem ég vildi koma inn á í ræðu hv. þingmanns er — og hv. þingmaður getur þá brugðist við því, af því að hv. þingmaður sagði að frumvarpið væri lagt fram í einhverjum annarlegum tilgangi, eða undarlegt væri hvernig það kæmi fram — hvort hv. þingmaður gæti útskýrt betur hvað hann á við. Það er ekkert slíkt í huga þess sem hér stendur.

Ég get alveg skilið þá umræðu sem er um það víðtæka samráð sem átti sér stað. En eins og hv. þm. Birgir Ármannsson, sem þá sat á Alþingi, kom inn á voru deildar meiningar um þennan þátt í þeirri heildarendurskoðun sem fór fram í því samráði. Það er ekkert óeðlilegt við að þær skoðanir speglist áfram eins og kemur fram í þessu frumvarpi.

Tilgangurinn með frumvarpinu er fyrst og fremst sá, og það er mín einlæga skoðun, að ákvörðunin eigi að vera í höndum sveitarfélaganna sjálfra. Þau þekkja best hver má vera æskilegur fjöldi fulltrúa. Og það er heldur ekkert í frumvarpinu sem kveður á um að þau þurfi að hverfa frá ætluðum fjölda fyrir þessar kosningar, fyrst hv. þingmaður kom inn á það í ræðu sinni.

Varðandi 2.000 íbúa mörkin, eins og kemur fram í tillögunni, er það í fullu samræmi við þær tölur sem eru þegar í lögunum.