148. löggjafarþing — 32. fundur,  1. mars 2018.

aðgengi að stafrænum smiðjum.

236. mál
[18:20]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni, fyrsta flutningsmanni þessa máls, fyrir að leggja það fram og jafnframt að fá tækifæri til að vera meðflutningsmaður á málinu. Ég ætla að byrja á að staðfesta ef það skyldi vera einhver vafi að hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra Lilja Dögg Alfreðsdóttir er framsýnn ráðherra. Ég er ekki í vafa um að hæstv. ráðherra styður þetta mál.

Eins og speglast hér og hv. þingmaður kom inn á eru hér meðflutningsmenn úr öllum flokkum. Þetta smellpassar inn í stjórnarsáttmála hæstv. ríkisstjórnar og á margan hátt er þetta mikilvægt mál met ég, ekki bara þegar kemur að skólastarfi, heldur einnig þeim samfélagslegu breytingum og þjóðfélagslegum breytingum í atvinnuháttum sem fram undan eru. Þetta snýr að verkmenntun, tækni, tölvum, stafrænu Íslandi, fjölbreyttara menntakerfi, samfélagslega staðbundnum lausnum eins og hv. þingmaður ræddi hér. Þetta hefur reynst þannig að þetta opnar smiðjur fyrir almenning sem er jafnframt mikilvægt.

Tengsl við framhaldsskólana eru mikilvæg eins og hv. þingmaður kom inn á og raunin hefur verið sú hér, þetta er þegar farið af stað með góðum árangri, en við þurfum auðvitað jafnframt að hugsa um grunnskólana og skólakerfið í gegn.

Hér síðast í dag í óundirbúnum fyrirspurnum var hv. þm. Smári McCarthy með fyrirspurn til hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra um þróun efnahagsmála og hæstv. ráðherra kom inn á það hversu mikla áherslu ríkisstjórnin leggur á nýsköpun sem er algjört lykilorð í þessu öllu saman. Þegar við ræðum framtíðarlífskjör og sjálfbæran hagvöxt þá verðum við að huga að nýsköpun. Ég renndi í gegnum stjórnarsáttmálann rétt áður en ég fór í ræðu, alltaf gott að hafa þann sáttmála við höndina, tala nú ekki um þegar kemur að þessum orðum eins og nýsköpun, rannsóknum og þróun. Við setjum vissulega fjármuni í nýsköpun sem er vel og eigum að gera það. Þetta mál speglar það þegar við skoðum hlutina og menntakerfið í heildrænu samhengi. Á hátíðisdögum tölum við um það að tengja saman atvinnulíf og skóla. Svona smiðja smellpassar í þá hugmyndafræði, opnar þann möguleika. Það er margt mjög jákvætt í þessu.

Í þessari þingsályktunartillögu um stafrænar smiðjur og aðgengi að þeim er lagt til að Alþingi álykti að fela mennta- og menningarmálaráðherra að vinna áætlun um þetta þannig að allar menntastofnanir komi að, framhaldsskólarnir, grunnskólarnir, háskólarnir og allt skólasamfélagið, en það er mjög mikilvægt, ég vil draga það fram hér, eins og gert er í tillögunni, að tryggja aðkomu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Þetta verkefni á í raun og veru getum við sagt heimilisfesti þar í dag, þar er þekkingin og verkefnið. Þess vegna er mjög mikilvægt að Nýsköpunarmiðstöðin komi að þessari stefnumótun sem er fram undan og ekki síður, eins og nefnt er hér, Samband íslenskra sveitarfélaga vegna þess að það er svo mikilvægt að dreifa þessu um landið. Þetta er byggðamál í leiðinni.

Þetta er í raun og veru mjög stórt mál ef við förum í þá umræðu. Þess vegna fagna ég þessu máli mjög og óska því alls hins besta og það fái framgang. Eins og ég sagði hér áðan, þetta smellpassar inn í fyrirætlanir stjórnvalda og inn í stjórnarsáttmálann.

Ég ætlaði að koma inn á aðgengið, í raun og veru ættum við að hafa svona smiðjur í öllum framhaldsskólum. Það er til vefur sem ég skoðaði í tengslum við þetta mál, það er tengill í sjálfri tillögunni á fyrirlestur þess sem var hugmyndafræðingurinn að þessu. Svo eigum við hér ágætisvef sem heitir Fab Lab Ísland, þar sem er farið yfir hugmyndafræðina. Ég hvet alla þá sem vilja kynna sér þetta betur að skoða þann þátt.

Ég ætla ekki að hafa mál mitt öllu lengra hér, hæstv. forseti, en fagna þessu máli mjög og er sannfærður um að það fái jákvæðar umsagnir og umfjöllun í væntanlega hæstv. allsherjar- og menntamálanefnd.