148. löggjafarþing — 38. fundur, 8. mars 2018.
vextir og verðtrygging.
246. mál
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Hefur verið skoðað að einhverju marki við undirbúning málsins hvort æskilegt sé að leggja það til við Hagstofu að hún útfæri vísitölu en taki sérstaklega á rekstrarkostnaði með það fyrir augum að nýta til framtíðar rekstrarhluta fasteigna en ekki fjárfestingarhlutfall og skipta þessu þar með upp? Er þetta hluti af þeim sex vísitölum sem Hagstofan heldur utan um? Tekur hún á þessu atriði?