148. löggjafarþing — 43. fundur,  22. mars 2018.

fyrirspurnir þingmanna.

[11:14]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti neyðist til að taka fram að hér er ekki rétt farið með málflutning forseta á fundum með formönnum þingflokka. Forseti hefur eingöngu lagt fram tölulegar upplýsingar um stöðu fyrirspurna og engin ummæli af því tagi haft að hann telji þær of margar. Þvert á móti hefur hann minnt á að þar er um að ræða mikilvægan og vel varinn rétt þingmanna og þarf svo sem ekki að hafa miklar áhyggjur af því þar sem hann er valdaður í stjórnarskrá.