fyrirspurnir þingmanna.
Herra forseti. Ég vil taka undir þá áskorun hv. þm. Loga Einarssonar til forseta Alþingis að hann brýni fyrir hæstv. fjármálaráðherra að svara umræddri fyrirspurn. Hér er mjög mikilvæg fyrirspurn á ferðinni og svör við henni veita mjög skýr skilaboð um hvers konar samfélagi við búum í og á hvaða vegferð við erum. Margt bendir til að eignaójöfnuður á Íslandi sé að aukast og nægur var hann fyrir. Samkvæmt svari við sambærilegri fyrirspurn á sínum tíma kom skýrt fram sú staðreynd að 5% landsmanna eiga næstum jafn mikið af hreinni eign og hin 95%. Ef við stækkum aðeins þetta mengi sjáum við að einungis 20% af þjóðinni eiga næstum því 90% af hreinni eign. Þannig að 80% landsmanna eiga restina, 10%. Það liggur á að fá þessar upplýsingar. Við sjáum sömuleiðis í fréttum hvernig ójöfnuður er að aukast þegar fréttir berast um að 26 íslenskir bankamenn fái um milljarð í laun á ári sem er (Forseti hringir.) einn fjórði af því sem þessi ríkisstjórn tímir að verja í vaxtabætur.