148. löggjafarþing — 43. fundur,  22. mars 2018.

fyrirspurnir þingmanna.

[11:23]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Hæstv. forseti. Í greininni í Morgunblaðinu í morgun um fyrirspurnir okkar þingmanna er vitnað til meistararitgerðar sem ég hlakka mjög til að lesa, sérstaklega heimildaskrána. Hér segir um þessa ritgerð, með leyfi forseta:

„Viðmælandi innan fjölmiðla sagðist hafa það eftir samskiptum sínum við aðila úr ráðuneytunum að fyrirspurnir væru einfaldlega að drekkja þeim í vinnu í mörgum tilfellum. Þaðan segist hann hafa þær skoðanir að erfið og gríðarleg vinna fari í að svara fyrirspurnum sem í sumum tilfellum virðast ekki þjóna miklum tilgangi við fyrstu sýn.“

Á nú að fara að setja upp matsnefnd í ráðuneytunum um það hvaða fyrirspurnir okkar þingmanna séu þess verðar, eða hvað? Nú þarf hæstv. forseti að standa með þingmönnum. Það er óþolandi að sitja undir svona þvættingi. Hann er nafnlaus, rakalaus, tilgangslaus og rangur. Ég heiti á forseta að standa með þingmönnum í þessu efni. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)