fyrirspurnir þingmanna.
Herra forseti. Ég ætla að lesa upp, sem mér tókst ekki í fyrri ræðu minni um fundarstjórn forseta, þann póst sem ég sendi þingmönnum fyrir 13 mínútum, með leyfi forseta:
„Sælir þingmenn. Alþingi getur með ósk sinni um stjórnsýsluúttekt fengið Ríkisendurskoðun, sem er eftirlitsstofnun Alþingis, til að meta hve vel stjórnvöld sinna upplýsingaskyldu sinni við Alþingi og hve vel þau fara með almannafé við að sinna þeirri skyldu sinni í lýðræðisríki. Skýrslubeiðnin er að Ríkisendurskoðun geri stjórnsýsluúttekt á verklagi stjórnvalda við að sinna upplýsingaskyldu við þingmenn, þingnefndir og Alþingi í heild og þar með talið stjórnsýslu þess með síðan tillögum til úrbóta.“
Og vitið þið hvað? Tillögur til úrbóta gætu verið að þær upplýsingar sem við erum að kalla eftir yrðu aðgengilegar okkur öllum í þessu samfélagi. Við erum langt á eftir þegar kemur að því að sinna upplýsingaskyldu við almenning. Þær upplýsingar sem við köllum eftir eiga að liggja fyrir. Kannski fáum við það út úr þessari stjórnsýsluúttekt að það myndi (Forseti hringir.) kosta miklu minna og við myndum græða öll miklu meira á því að hafa þetta allt opið. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)