148. löggjafarþing — 49. fundur,  13. apr. 2018.

utanríkis- og alþjóðamál.

510. mál
[15:38]
Horfa

utanríkisráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég held að það sé alveg hárrétt hjá hv. þingmanni, réttar upplýsingar þurfa að koma fram. Hvaðan kem ég með þessar upplýsingar þegar kemur að því hvaða áhrif það hefur að ganga inn í ESB, hvaðan hef ég þær? Hvaðan skyldi ég hafa þær? Það er beint úr vinnuhópunum sem voru að vinna í aðlögunarviðræðunum á sínum tíma. Beint úr þeim. Orðrétt. Úr þeim skýrslum sem voru er það orðrétt.

Síðan liggur það fyrir að við innleiðum 13,4% af gerðum ESB. Ekki er um það deilt. Talandi um að bera saman epli og appelsínur, þá hvet ég hv. þingmann til að kynna sér hvað er um að ræða þegar talað er um það sem Norðmenn töluðu um. Þeir voru ekkert að tala um innleiðingu á gerðunum. Þeir skiptu þessu upp í málefnasvið, ekki ósvipað því og gert var þegar Ísland fór í aðildarviðræðurnar. Ef menn taka eftir málefnasviðum segir það náttúrlega ekki nokkurn skapaðan hlut, segir bara hvað þetta eru mörg málefnasvið og þar af leiðandi erum við komin með þrjá fjórðu inn í Evrópusambandið. Það stenst ekki nokkra einustu skoðun. Reyndar tóku Norðmenn líka alla samningana við Evrópusambandið, meira að segja hvað varðar landbúnað og sjávarútveg og annað slíkt. En í guðs bænum, við skulum bara fara í grunninn á þessu og fara nákvæmlega í það hvaða upplýsingar þetta eru og hvaðan þær koma.

Innleiðingarhallinn, hvort sem hv. þingmanni líkar það betur eða verr, kom í kjölfarið á því að við fórum að sækja um aðild að Evrópusambandinu, byrjaði árið 2009 og hækkaði mjög 2011. Ef hv. þingmaður les þessa skýrslu er farið nákvæmlega í það hvað var tekið niður og hvað við erum að koma með hér upp.

Það er rétt að ýmsar upplýsingar voru ekki nákvæmar varðandi Brexit og þurftu ýmsir aðilar að biðjast afsökunar eftir atkvæðagreiðsluna af því að þeir spáðu því að efnahagurinn myndi t.d. bera stórkostlegan skaða um leið og Bretar myndu samþykkja það að ganga út.

Við höfum vonandi nógan tíma, virðulegi forseti, til að fara í þetta. En það er áhugavert ef hv. þingmaður er að segja að þær upplýsingar (Forseti hringir.) sem komu frá vinnuhópum Íslands í ESB séu rangar.