148. löggjafarþing — 51. fundur,  16. apr. 2018.

skipulag haf- og strandsvæða.

425. mál
[16:50]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (andsvar):

Hæstv. forseti. Varðandi fyrri spurninguna áðan um málamiðlun þarna á milli er það nokkuð sem kemur væntanlega til kasta nefndarinnar að skoða. Ég er sjálfur persónulega mjög fylgjandi því að aðkoma sveitarfélaganna sé rík að þessum málum og tek ekkert illa í það ef hægt er að útfæra þetta með einhverjum þeim hætti sem gæti komið meira til móts við sveitarfélögin. Ég myndi ekki standa í vegi fyrir því, en tel þó mikilvægt að þarna sé ákveðið forræði á hendi ríkisins.

Varðandi fjármögnunina er, líkt og þingmaðurinn bendir á, gert ráð fyrir því að strandsvæðisskipulagið fyrir Austfirði og Vestfirði verði greitt með þeim hætti sem þingmaðurinn greindi frá. Við erum að vinna að því í ráðuneytinu að láta það ganga upp, að sjálfsögðu, því að við skiljum vel mikilvægi þess að þetta geti gengið eftir. Austfirðirnir bætast vissulega við, má segja, frá fyrra frumvarpi sem lagt var fram fyrir ári, en við erum að reyna að finna leiðir til að þetta geti gengið upp.