148. löggjafarþing — 54. fundur,  24. apr. 2018.

þjónusta við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir.

26. mál
[15:23]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að fara betur yfir þennan mikilvæga þátt. Það er gott að heyra að þetta hafi verið rætt í nefndinni og ég tek heils hugar undir að það eru vissulega ákveðin réttindi að viðkomandi geti haft svolítið sjálfur um þetta að segja. Það er í anda frumvarpsins. En það er annað sem ég nefndi áðan, þ.e. að skoða reynslu annarra. Þá höfum við Norðurlöndin og í þessum málum er alltaf eitthvað sem má betrumbæta, laga. Þá er gott að geta horft til fordæmis og reynslu annarra í þeim efnum.

Að öðru leyti þakka ég hv. þingmanni fyrir að fara vel yfir þann þátt sem ég nefndi áðan.